Hlutverk náms- og starfsráðgjafa
Hlutverk námsráðgjafa er að vinna með nemendum, forráðamönnum, kennurum, skólastjórnendum, öðrum starfsmönnum skólans og fagaðilum utan skólans að ýmiss konar velferðarstarfi er snýr að námi, líðan og framtíðaráformum nemenda.
- Samvinna milli nemanda og námsráðgjafa er grundvöllur þess að ráðgjöfin nýtist nemandanum
- Aðstoð námsráðgjafa miðar að því að nemandinn læri að taka ákvarðanir sem skipta hann máli
- Nemendur geta leitað til námsráðgjafa að eigin frumkvæði eða beðið umsjónarkennara, stjórnendur eða forráðamenn um að hafa milligöngu um viðtal
- Forráðamenn geta einnig leitað beint til námsráðgjafa