Fréttir
Nú er sumri tekið að halla og skólabyrjun fram undan. Skólasetning verður með öðru sniði en venjulega því fullur skóladagur verður þann dag. Skólasetning verður mánudaginn 22. ágúst eins hér segir: Nemendur í 2. til 4. bekk mæta kl. 8:10 á sal skólans Nemendur í 5. til 7. bekk mæta 8:30 á sal skólans…
NánarSumarlokun
Skrifstofa skólans verður lokuð frá 24. júní og opnar aftur að loknu sumarleyfi miðvikudaginn 3. ágúst. Skólasetning og fyrsti skóladagur hjá nemendum í 2. til 7. bekk verður mánudaginn 22. ágúst 2022. Nemendur í 1. bekk verða boðaðir í viðtöl með foreldrum sínum um miðjan ágúst. Starfsfólk Selásskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars…
NánarÚtskrift 7. bekkjar
Í gær þriðjudaginn 7. júni útskrifaðist flottur hópur nemenda úr Selásskóla. Í haust munu þau hefja skólanám á nýjum slóðum. Við athöfnina voru fluttar ræður, ljóðaupplestur og tónlistaratriði. Úrslit í ljóðasamkeppni voru gerð kunn og svo gæddum við okkur á gómsætum veitingum. Við óskum þessum flotta hópi til hamingju á þessum tímamótum og óskum þeim…
NánarKörfuboltavöllur vígður
Í dag miðvikudaginn 25.maí var flotti körfuboltavöllurinn okkar loksins vígður. Hann var tekin í notkun seint í haust og vegna veðurs hafði ekki tekist að vígja hann formlega fyrr en nú. Þau Stefanía og Bergþór íþróttakennarar við skólann stýrðu hátíðinni en allir nemendur skólans tóku þátt með því að sýna listir sínar með körfubolta. Völlur…
NánarNemendaverðlaun SFS
Nemendaverðlaun skóla- og frístundaráðs voru afhent við hátíðlega athöfn í Rimaskóla í gær mánudaginn 23. maí. Þetta er í tuttugasta skipti sem verðlaunin eru afhent til nemenda í grunnskólum borgarinnar sem skara fram úr í námi og starfi. Það voru 34 börn úr 3. til 10 bekk úr skólum borgarinnar sem fengu viðurkenningu að þessu…
NánarSveitaferð hjá 1. bekk
Í dag fór 1.bekkur í árlega sveitaferð á Bjarteyjarsand í Hvalfirði. Nemendur eru að læra um húsdýrin og fengu þarna góða innsýn inn í sauðfjárbúskap og þá sérstaklega sauðburðinn sem stendur sem hæst núna. Nemendur skruppu einnig í fjöruna áður en þeir nærðu sig á grilluðum pylsum. Veðrið lék við okkur þrátt fyrir kaldan vindinn.…
NánarSkólabúðir
Dagana 25. til 29.apríl dvaldi 7. bekkur skólans í skólabúðunum að Reykjum í Hrútafirði. Með þeim voru kennarar og nemendur úr Árbæjar- og Ártúnsskóla. Yfir daginn tóku nemendur þátt í skipulagðri dagskrá á vegum skólabúðanna, fóru í íþróttir, lærðu náttúrufræði, fóru í ýmsa leiki og heimsóttu byggðasafnið. Á kvöldin voru kvöldvökur þar sem kennarar og…
NánarSkólahljómsveitin í heimsókn
Í gær þriðjudag kom A- sveit Skólahljómsveitar Árbæjar- og Breiðholts í heimsókn til okkar. Hljóðfærin voru kynnt ásamt starfssemi sveitarinnar. Það voru nemendur í 2. og 3. bekk sem fengu að hlusta að þessu sinni og höfðu þau mjög gaman af. Þrír nemendur úr 3. bekk spila einmitt með sveitinn þær Matthildur Mínerva, Rún og…
NánarVorferð hjá 6.bekk
Þann 25.apríl síðastliðinn fór 6.bekk í frábæra vorferð sem heppnaðist stórkostlega. Fyrst var farið niður á Faxaflóahöfn þar sem við fengum okkur sparinesti á höfninni. Síðan klæddum við okkur í björgunarvesti og héldum í siglingu á skipinu Rósinni. Tveir nemendur úr Háskóla Íslands, líffræðideild, tóku á móti okkur og skiptu okkur í tvo hópa. Annar…
NánarHjálmar frá Kiwanis
Kiwanisklúbburinn Jörfi í samstarfi við Eimskip gaf nemendum í 1.bekk reiðhjólahjálma að gjöf í tilefni af sumri. Síðasta mánudag kom fulltrúi þeirra Haraldur Finnsson í heimsókn í 1. bekk ásamt skólastjóra og afhenti nemendum hjálmana sem öllum var frjálst að afþakka. Það er von allra að nemendur verði duglegir að hjóla í sumar og fara…
Nánar