Vinnumorgunn í húsdýragarðinum

Nemendur í 6.bekk fóru á vinnumorgun í Húsdýragarðinum á þriðjudaginnog stóðu sig með stakri prýði. Þeim var skipt niður í 3 hópa þar sem hver hópur fékk ákveðin dýr að hugsa um, þrífa undan og gefa. Í leiðinni fræddust þau um dýrin og áttu í lokin að útbúa stutta kynningu fyrir hina hópana. Ferðin var bæði skemmtileg og fræðandi og mikil upplifun fyrir nemendur. Frábær dagur. Myndir