Leikjadagur

Í dag var leikjadagur hér í Selásskóla. Við byrjuðum daginn á því að fara saman í hið árlega Rauðavatnshlaup en þar tóku allir vel á því og sprettu úr spori. Eftir frímínútur var nemendum skipt í hópa, yngri og eldri og fóru á milli stöðva með mismunandi þrautum. Við létum það ekki á okkur fá þótt aðeins hafi rignt á okkur. Eftir að leikjum var lokið þá var boðið upp á grillaðar pylsur og allir voru glaðir eftir þessa útiveru. Myndir