Skip to content

Vetrarfrí í grunnskólum

Dagana 28. febrúar og 2.mars verður vetrarfrí í öllum grunnskólum Reykjavíkur. Þá daga er skólinn lokaður og öll kennsla fellur niður. Skóli hefst aftur þriðjudaginn 3. mars samkvæmt stundasrká.

Ókeypis dagskrá verður í öllum frístundamiðstöðvum og viðburðir miðaðir við þarfir fjölskyldunnar. Þannig verður boðið upp á spiladag, föndur, smiðjur, klifur, og útieldun þar sem ungir sem aldnir geta skemmt sér saman.

Í vetrarfríinu fá fullorðnir í fylgd með börnum frítt inn á Kjarvalsstaði, Ásmundarsafn, Árbæjarsafn, Landnámssýninguna í Aðalstræti, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Sjóminjasafnið í Reykjavík. Þá býður Borgarbókasafnið upp á dagskrá í öllum útibúum, s.s. upplestur, tónlist, perluföndur, bíó og popp.

Á Kjarvalsstöðum verður örnámskeið í boði fyrir 6-9 ára börn í vídeólist og Ásmundarsafn býður upp á skemmtileg verkefni fyrir alla fjölskylduna í tengslum við sýninguna sem nú stendur yfir.

Sjá dagskrá frístundamiðstöðvanna og menningarstofnana í vetrarfríinu.