Upplestrarkeppnin

Enn tökum við þátt í Stóru upplestrarkeppninni hér í Selásskóla en markmiðið með henni er að vekja athygli og áhuga á vönduðum upplestri og framburði. Nemendur 7. bekkja hófu undirbúning að keppninni í nóvember og hafa síðan æft sig í upplestri. Undanúrslit keppninnar voru á sal skólans í gær þar sem nemendur komu saman ásamt þriggja manna dómnefnd.
Úrslit urðu þau að þeir Heiðar Egill Borgþórsson og Stefán Ingi Ólafsson voru valdir til að keppa fyrir hönd skólans í Árbæjarkirkju fimmtudaginn 21. mars. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn. Vert er að taka fram að allir nemendur stóðu sig með sóma. Hér er hægt að sjá myndir frá viðburðinum.