Skip to content

Bangsadagurinn

Alþjóðlegi bangsadagurinn er 27.október ár hvert og þar sem sá dagur er á laugardegi í ár tókum við forskot á sæluna og héldum upp á hann í dag þann 26. október. .
Bangsadagurinn fellur ár hvert á fæðingardag Theodore „Teddy“ Roosevelt, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og er hann haldinn hátíðlegur víða um heim.
Roosevelt var mikil skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á veiðum hafi hann vorkennt litlum varnalausum bjarnahúni og sleppt honum. Washington Post birti skopmynd af þessum atviki.
Búðareigandi einn í Brooklyn í New York varð svo hrifin af þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa sem hann kallaði í höfuðið á Teddy eða Teddy Bear. Nú er þessi leikfangabangsi orðin vinsæll leikfélagi barna um allan heim og er hann í aðalhlutverki þegar alþjóðlegi bangsadagurinn rennur upp.
Að sjálfsögðu fengu nemendur Selásskóla að koma með bangsana sína í skólann og það var mikið fjör. Í mörgum bekkjum voru unnini verkefni í tengslum við þessa skemmtilegu viðbót við skólastarfið. Samdar voru sögur og ljóð og nemendur í 7. bekk saumuðu föt á sína bangsa í textíl. Nemendur heimsóttu skólasafnið og gátu giskað á fjölda gúmmíbangsa í krukkum og voru verðlaun í boði fyrir þann sem giskaði á réttan fjölda eða því sem næst.